Gleðileg ORANGE-JÓL!
- ORANGE PROJECT
- Dec 23, 2015
- 1 min read
Orange Project óskar viðskiptavinum sínum, sem og landsmönnum öllum, nær og fjær gleðilegra jóla og árangursríks komandi árs.

Við þökkum ört stækkandi hópi viðskiptavina okkar sérstaklega fyrir ánægjuleg samskipti á árinu og hlökkum til þess að sjá þann hóp stækka enn frekar á komandi ári.
Við erum einnig þakklát og stolt af viðtökunum sem Orange Project-lausnirnar hafa fengið á árinu sem er að líða en í fermetrum talið hefur Orange Project stækkað um tæplega 150% á rúmu ári.
Ævintýrið byrjaði síðla árs 2014 í Ármúla 6 og nú rétt fyrir jól svöruðum við eftirspurninni með glæsilegu skrifstofurými í Hafnarhvoli við Tryggvagötu 11. Í byrjun næsta árs bætast síðan enn fleiri rými við þegar við opnum í Ármúla 4 með alls konar skemmtilegum nýjungum.

Fylgist með okkur 2016 og sjáumst hress í fersku og lifandi skrifstofuhúsnæði Orange Project!
Comments