OPNUN 18 APRÍL - PLANET EARTH
- ORANGE PROJECT
- Apr 11, 2015
- 1 min read

Okkur hjá Gallery Orange þykir því vænt um að setja upp fyrstu einkasýningu Þorsteins Óla eða STONE OLi eins við köllum hann hér eftir.
OPNUN sýningar er laugardaginn 18 apríl kl 14:00 í Gallery Orange, Ármúla 6. Allir velkomnir.
Boðið verður upp á léttar veitingar og með því, ásamt draumkenndri music í Orange umhverfi. Garðurinn verður opinn.
Þorsteinn Óli Sigurðsson fæddist 1957 í hverfinu, ólst upp og gekk menntaveginn í hverfinu og nú er komið að því að hann sýni í hverfinu í Gallery Orange. Það eru ekki nema 10 ár frá því að hann byrjaði að grípa í penslana og landslagið var sett á striga og nú liggja í valnum yfir 30 verk í öllum stærðum sem eru bæði abstrakt og landslagið eins og hann sér það fyrir sér í dag. Þorsteinn fer mikinn í myndlist sinni, er óhræddur og djarfur í nálgun sinni að myndefninu. Í verkum hans má sjá að þarna er maður á ferð sem hefur viðtæka þekkingu úr hinu daglega lífi og í gegnum menntun Þorsteins Óla má sjá form sem rekstartæknifræðingar vinna með daglega og koma einnig fyrir í sjávarútvegi.
Sýningin verður svo opin alla virka daga frá kl 9 – 17 og aðgangur er ókeypis. Hægt er að panta sérstaklega kynningu fyrir hópa eða félagasamtök um helgar eftir frekara samkomulagi.
Öll verkin á sýningunni eru til sölu.
Nánari upplýsingar veitir Tómas Hilmar Ragnars í síma 5 27 27 87 eða tomas@orangeproject.is
Comentários