top of page

!0 OPNUN - GALLERY ORANGE

  • Writer: Tómas Hilmar Ragnarz
    Tómas Hilmar Ragnarz
  • Nov 27, 2014
  • 1 min read

Velkomin á !0, sýningu í þremur rýmum Gallerý Orange þann 4. des kl. 17:00 í Ármúla 6. !0 er sýning á verkum Ólafar Benediktsdóttur, myndlistamanns, en hún útskrifaðist úr Listaháskóla Íslands árið 2013 og hefur verið iðin við sýningarhald undanfarin misseri. Sýningin dregur nafn sitt af röð verka sem Ólöf hefur unnið að undanfarið ár, en auk þess sýnir hún eldri verk og teikningar. „Seðlabanki Íslands kynnti 10.000 kr seðilinn fyrst til sögunnar á aðalfundi bankans árið 2012 og í árskýrslu bankans frá sama ári var greint frá undirbúningi útgáfunnar. Seðillinn var hannaður af Kristínu Þorkelsdóttur ásamt Stephen A. Fairbairn og var settur í umferð fimmtudaginn 24. október árið 2013. Ég eignaðist minn fyrsta 10.000 króna seðil vorið 2014. Í kjölfar þess að ég eignaðist þennan stóra seðil gerði ég vídeóverk sem ég tók í gegnum gagnsæju öryggisröndina á seðlinum. Vídeóverkið varð að röð verka sem hverfast um 10.000 króna seðla og ganga saman undir heitinu !0.“ - Ólöf Benediktsdóttir Ólöf vinnur mikið með hlaðinn efnivið í verkum sínum sem hafa sterka tengingu við efnahagskerfi samfélags okkar. Hún hefur þegar dregið innblástur frá kaffi og olíu, tveimur eftirsóttustu söluvörum heimsins, og snýr sér nú að grunninum sjálfum, að gjaldmiðlinum og því sjónræna tungumáli sem hann býr yfir. Boðið verður uppá léttar veitingar frá 17:00

 
 
 

Comments


Nýtt Efni
Nýlegar Færslur
Eltu Okkur 
Efnisleit
Eldra Efni
  • Facebook Basic Square
  • Twitter Basic Square

© 2015 by orange project ehf. : ármúli 4 og 6 : tryggvagata 11, hafnarhvoli , 2 hæð : simi (+354) 5 27 27 87 

bottom of page