
SKRIFSTOFU- & FUNDARÝMI
Fullbúnar skrifstofur með húsgögnum. Skrifborð, stólar, símtæki, internet og aðgangur að sameiginlegum fundarherbergjum, te- & kaffiaðstöðu ásamt þrifum eftir þörfum hvers og eins.

Fundaraðstaða
Í boði eru fundarherbergi fyrir litla og stóra fundi. Öll aðstaða er til fyrirmyndar. Á staðnum er tölvubúnaður, skjávarpi og tjald.
Hentar einnig vel fyrir minni fyrirlestra og félagasamtök með fundi eða kynningar.
Opin rými með skrifstofuaðstöðu og afnotum af fundarherbergjum, kaffiaðstöðu, interneti og þeirri þjónustu sem hver og einn þarf hverju sinni.
Hentar vel aðilum sem eru mikið á ferðinni en vilja hafa fastan samastað.

Öll þjónusta í boði
Skiptiborð sem er opið frá 9:15-12:00 & 13:00-16:00 alla virka daga, útibú frá Te & kaffi, þráðlaust internet, símaver, prentun, skönnun & ljósritun, póstþjónusta.
Opið 24/7 allt árið.