top of page

“Litbrigði Hugans”

  • Gallery O
  • Dec 1, 2015
  • 2 min read

Orange Project, Ármúla 4-6, kynnir með stolti næsta listamann sem sýnir hjá okkur í Gallery O. Jóhann S. Vilhjálmson og sýning hans “Litbrigði Hugans”. Donna, betur þekktur sem Þórður Hermannson sellóleikari, mun flytja klassísk verk á meðan sýningunni stendur. Sýningin opnar þann 5. desember næstkomandi kl 16.

Í þessari annari einkasýningu Jóhanns S. Vilhjálmsonar, kveður við álíka tón og í fyrri sýningu hans þar sem viðfangsefnið er ljóðræn túlkun á tíma og rúmi. Þó má rekja töluverða þróun til síendurtekinna forma með breytum (fractalisma og fragmentarium) og þess sem má túlka sem asemic skrift. Hið leikandi samspil lífs og forms er ein heild án upphafs og enda. Þetta samspil veitir áhorfandanum frelsi til að túlka verkin á þann hátt sem honum hentar.

Myndirnar eru fyrir hvern og einn að túlka. Allar myndirnar hans Jóhanns eru handgerðar á sýrufrían pappír og gerðar með pantone bleki. Engar tvær myndir eru eins.

Jóhann S. Vilhjálmson byrjaði snemma að sýna listinni áhuga. Til tvítugs prófaði Jóhann sig áfram með ýmiskonar handbragð og stíla en hætti. Lífið tók við, börn og vinna, byggja hús og sjá fyrir sér og fjölskyldunni. Svo tæplega um fertugt byrjaði Jóhann á ný, þá helst með olíumálingu. Árið 1999 tók penninn við, svart á hvítt. Smátt og smátt bættust litir við en árið 2010 var eins og eitthvað utanaðkomandi afl hafi sett flæði í gang hjá Jóhanni og nú segir hann sjálfur að hann þurfi að klára heila mannsævi í listsköpun sinni. Þörfin er knýjandi til að skapa, núna þegar hann er byrjaður. Jóhann skapar ekki bara myndlist heldur yrkir hann ljóð og skrifar smásögur í mynd, sem kallast still life comic. Þrátt fyrir stuttan feril í myndlist hefur Jóhann vakið athygli utan landsteinanna og á aðdáendur um allan heim.

Hugleiðsluferill leiðir Jóhann í myndvinnslunni og er hver mynd úthugsuð áður en hann byrjar á verkinu. Jóhann sækir innblástur sinn jafnt til tónlistar, danshreyfinga og heimsspeki. Nýtur hann þar þekkingar á bókmenntum og eru verk Dostoyevsky, W. S. Burroughs og Milorad Pavic þar á meðal áhrifavalda.

 
 
 

Comentarios


Nýtt Efni
Nýlegar Færslur
Eltu Okkur 
Efnisleit
Eldra Efni
  • Facebook Basic Square
  • Twitter Basic Square

© 2015 by orange project ehf. : ármúli 4 og 6 : tryggvagata 11, hafnarhvoli , 2 hæð : simi (+354) 5 27 27 87 

bottom of page