
GÓÐ SAMSKIPTI
Samskipti eru ekki bara samskipti. Þau þurfa að vera góð í alla staði hvort sem rætt er við núverandi eða væntanlega viðskiptavini. Þá skiptir ekki heldur máli hvort samskipti fara fram í tveggja manna tali, í gegnum netið eða aðar leiðir sem í boði eru í dag.
Við bjóðum fyrirtækjum að leigja sér markaðs- og viðburðastjóra í sérverkefni. Þetta er góð lausn sem þekkist mikið erlendis. Þannig spara lítil og meðalstór fyrirtæki sér það að hafa aðila í vinnu allt árið um kring, en greiða aðeins fyrir þegar þess er þörf.
ORANGE hefur á að skipa miklum mannauð sem hefur víðtæka reynslu í því að tala við fólk, framkvæma og ná árangri. Við höfum gaman af góðum samskiptum en okkur leiðist að tala bara um hlutina heldur viljum við framkvæma og láta hlutina gerast á skjótan og árangursríkan hátt.
Það sem við getum boðið þér upp á er eftirfarandi og ef það er ekki á þessum lista erum við tilbúin til að hlusta á þig, finna lausnir með þér og sérsníða eftir þínum þörfum hverju sinni.
· Almennar auglýsingar
· Firmamerki – logo
· Nafnspjöld
· Markpóstur
· Bréfsefni
· Merkingar – gluggar / skilti
· Umsjón með samfélagsmiðlum – Facebook, Twitter, Instagram, Pinterest
· Vefsíðugerð
· Leitarvélabestun – SEO
· Auglýsingar á netinu – borðar – GoogleAD – Facebook – Youtube
· Vefverslun
· Vörulistar
· Auglýsingabirtingar
· Þarfagreiningar
· Sölukynningar
· Netleikir