OPNUN 4. JÚNÍ
- ORANGE PROJECT
- May 28, 2015
- 2 min read
Okkur hjá Gallery ORANGE þykir sönn ánægja að kynna listamanninn unga arnar birgis og sýningu hans „ nafnlaus„ ; arnar birgis.
OPNUN sýningar verður fimmtudaginn 4.júni kl 17:00 í Gallery ORANGE, Ármúla 6. Allir velkomnir og léttar veitingar verða í boði. Dj Ghozt mun spila ljúfa tóna.

Listamaðurinn er arnar birgisson. Tuttugu og sex ára breiðhyltingur með hjartað í miðbænum. Hann tekur sér það fyrir hendur að tjá sína innri orku með litum, hreyfingu og það hvernig hann gengur gangvart striganum, hvort sem hann sé úr lérefti eða öðru, fer alltaf eftir dagsformi og ástandi seinustu daga. Ástand hans hefur verið nokkuð stöðugt síðustu misseri.
En þótt samfélagið fái ekki að skína í gegnum myndlistina fær túlkun og tilfinning listamannsins ávallt að koma í gegn, hvort sem hún sé komin frá nær eða fjærtilfinningum listmanninum unga.
Viðfangsefni Arnars er því alltaf lífið sjálft og hvort sem hugmyndin sé raunveruleg eður ei er á endanum túlkunin skilin eftir hjá áhorfandanum á því augnabliki.
Listamaðurinn er kominn tvo þriðju af leiðinni á bakkalárinn og í dag sitja eftir þrjár einkasýningar ásamt einstaka samsýningum og bösurum.
Hans fyrsta einkasýnig hét MÁLVERK: TVÖ ÁR Í VINNSLU og var var haldin í byrjun september 2014 á gömlu stofunni sem staðsett var við Ingólfstorg. Sýningin var mikið innblásin af breyttum persónulegum aðstæðum í lífi listamannsinns. Sýning tvö: DRUNKEN LANDSCAPE; var síðan sett upp í reykherbergi skemmtistaðarinns Húrra í októbermánuði en hún heldur áfram að flæða um ótilgreinda framtíð. Seinasta sýning ;SALON DE ÉLEVÉ; stóð síðan í viku í kjallara á myndarlegu bláu húsi við hverfisgötu en hún gekk öll út á offlæði rýmis og huga.
Framundan liggja svo nýjar víddir og nýjir tímar í listsköpun, samsýningar og nýjir vettvangar.
Sýningin verður svo opin alla virka daga frá kl 9 – 17 og aðgangur er ókeypis. Hægt er að panta sérstaklega kynningu fyrir hópa eða félagasamtök um helgar eftir frekara samkomulagi án auka gjalds nema ánægjunnar.
Öll verkin á sýningunni eru til sölu.
Nánari upplýsingar veitir Tómas Hilmar Ragnars í síma 5 27 27 87 eða tomas@orangeproject.is - www.orangeproject.is
Sýningarstjóri er Rakel Ósk
Comments