
RITARINN ÞINN
ORANGE býður fyrirtækjum upp á þjónustu þar sem ritarinn situr ekki innan veggja fyrirtækisins og losar þar með fyrirtæki undan þeirri yfirbyggingu sem því fylgir. Fyrirtæki ættu því að geta sparað sér umtalsvert fé með því að nýta sér þessa þjónustu þar sem eingöngu er greitt fyrir þá vinnu sem þörf er á og þjónustan er til staðar þegar á þarf að halda. Ritaraþjónustan er klæðskerasaumuð utan um rekstur fyrirtækisins og er hægt að auka eða minnka þjónustuna í takt við hann.
Þessi þjónusta er þekkt víða erlendis og hefur reynst vel og er nokkuð vinsælt meðal fyrirtækja að nýta þessa þjónustu svo starfsfólk geti einbeitt sér að kjarnastarfseminni hvort sem um stór eða lítil fyrirtæki sé að ræða. Fyrirtæki þurfa yfirleitt á aðstoð að halda við ýmis tilfallandi mál en samt er það ekki nóg til að halda úti ritara í fullu starfi og því er hægt að nýta Ritaraþjónustuna til að ráða vel þjálfaðan ritara til að sinna þessum störfum fyrir aðeins brot af því sem það kostar að ráða starfsmann.
Ritaraþjónusta
Ritaraþjónusta okkar felur í sér eftirfarandi:
-
Sérhæfð skýrslugerð og ritun. Þar er átt við ritun af upptökum á borð við ritun fyrir lögfræðinga, lögreglu, öryggisgæslu og alla þá sem þurfa að skila rituðum skýrslum fyrir störf sín.
-
Almenn ritun t.d. að rita fundargerðir, rita niður texta eftir upptökutækjum o.fl.
-
Ritaraaðstoð þar sem við sjáum t.d. um að semja fundarboð og senda út, skrifa niður og senda út markpósta, útbúa markaðspakka og senda út og margt fleira.
ORANGE PROJECT er í samstarfi við Ritari.is